Innskráning í Karellen

Barnaheimilið Ós er foreldrarekinn leikskóli í Litla Skerjafirði. Skólinn á sér langa sögu en hann hefur ávallt verið rekinn af hugsjónaríkum foreldrum í góðu samstarfi við menntað fagfólk.

Okkar megin áherslur eru könnunarnám í anda Reggio Emilia, frjálsi leikurinn og á heildræna upplifun barnsins á lífi sínu og námi. Við lítum á börnin sem hefja leikskólagöngu sína í leikskólanum sem litla könnuði á leið í sinn fyrsta leiðangur.

Með hugtakinu foreldrarekinn er ekki einungis átt við rekstrarformið með stjórn, starfsráði, stórfundum, starfsdögum og fleiru, heldur einnig að foreldrar og aðrir aðstandendur barnanna á hverjum tíma hafi tækifæri til að fylgjast með og móta starfsemina þannig að eðlilegt samhengi skapist á milli uppeldis á Ósi og heimili barnsins. Ábyrgðin er sameiginleg og með þessu móti gefast foreldrum möguleikar á stefnumörkun. Starfið á Ósi endurspeglar því vilja og áhuga foreldra og starfsfólks á hverjum tíma.

Við inngöngu á Barnaheimilið Ós verða barnið og foreldrar þess hluti af Ósfjölskyldunni. Eins og hjá öðrum fjölskyldum er gagnkvæm tillitssemi, virðing og traust allra fjölskyldumeðlima grundvöllurinn fyrir því að góður árangur náist í uppeldinu.

Á Ósi er mikið lagt upp úr hollu og góðu fæði sem matreitt er af mikilli alúð frá grunni í eldhúsi skólans.

Lítill ungbarnakjarni er á Ósi sem pláss er fyrir 7 kríli á aldrinum 12 til 18 mánaða. Fyrir utan ungbarnakjarnan þá eru að jafnaði 30 itl 40 börn á aldrinum 2 til 6 ára.

Sem stendur er Ós eini foreldrarekni leikskólinn í Reykjavík og er því einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur sem að leggja áherslu á virka fjölskyldusamveru og þáttöku í námi barnanna. leikskoladagatal-2022-2023 (1).xls